Helgarpakkar 2010
Í verði allra pakkanna er innifalið gisting, fullt fæði og aðgangur að Jarðböðunum við Mývatn og Sundlauginni í Reykjahlíð auk þess gönguskíði og skór, vallargjöld á golfvöllinn í Reykjahlíð eftir því sem við á.
Sveitaþorrablót
Gildir 4-7 febrúar. 27.900 á dag fyrir 2, aukanótt 10.000 kr fyrir 2 með fæði.
Langar þig ekki á alvöru sveitaþorrablót þar sem borðin svigna undan heimagerðum kræsingum og hægt er að njóta útiveru milli þess sem bragðað er á hinum ýmsu kræsingum af gómsætum þorramat? Við búum þetta til og gerum úr því heila helgi af upplifun í mat og útiveru. Veislan byrjar á föstudagskvöldi með súpu og lambasteik að hætti sveitamannsins með ís á eftir. Í hádeginu á laugardag snæðum við svo hina ýmsu grauta og borðum súrmat með. Leikum okkur svo úti í vetrinum allann daginn og um kvöldið er aðalmáltíðin með sviðum, hangikjöti, harðfisk og hákarli, úldnum eggjum að mývetnskum sið að ótöldu öllu hinu góðgætinu. Þetta er veisla sem engin mataráhugamaður lætur framhjá sér fara.
Letidagar
Gildir fimmtudag til sunnudags frá 11 febrúar til 28 mars, 27.900kr á dag fyrir 2, aukanótt 10.000 kr fyrir 2, með fæði
Hefur þig aldrei dreymt um að snjóa inni eða verða veðurteppt á hálendinu? Í góðum félagsskap, á góðu hóteli með fyrsta flokks þjónustu getur slíkur draumur orðið að lífsnautn sem þú aldrei gleymir. Takið með ykkur sleðann eða leigið hjá okkur, nóg af gönguleiðum, troðnar skíðagöngubrautir og ómótsæðileg náttúrufegurð innrömmuð í norðurljósum á fallegu vetrarkvöldi.
Gleðilega páska
Gildir frá 1 – 5 apríl, 30.600kr á dag fyrir 2, aukanótt 10.000 kr fyrir 2, þriðja nótt 8.000 kr fyrir 2 og fjórða nóttin frítt.
Það er gaman að vera í Mývatnssveit um páskana, sleðafæri um öll fjöll, troðnar göngubrautir fyrir gönguskíði, píslargangan á Föstudaginn langa, tónleikar með Músík í Mývatnssveit og svo auðvitað Jarðböðin á hverjum degi sem líkur með sælkeramálíð í okkar vinsæla veitingahúsi Myllunni.
Vor í Mývatnssveit
Gildir fimmtudaga til sunnudaga frá 8 apríl til 6 júní, 27.900 kr á dag fyrir 2, aukanótt 10.000 kr fyrir 2.
Vorin á hálendinu eru töfrum líkust, rómantíkin svífur í loftinu sem ómar af fuglasöng í bjartri nóttinni. Land og lögur iðar af lífi og fjöri og náttúran öll lifnar við. Gönguferðir í þessu umhverfi er nokkur sem lætur engan ósnortinn á sál og líkama.
Golfpokinn
Gildir alla daga frá 15 maí til 20 júní og svo frá 20 ágúst til 30 september 27.900 kr á dag fyrir 2, aukanótt á 10.000 kr fyrir 2.
Skammt frá hótelinu er Golfvöllur Golfklúbbs Mývatnssveitar sem er einn mest krefjandi golfvöllur landsins. Hann er 9 holur og par 66, langar og stuttar brautir um hóla og hæðir. Þetta er völlur er jafnvel bestu spilarar þurfa að taka á stóra sínum. Við bjóðum einstakt tækifæri til að leika þennan völl í bjartri sumarnóttinni eða í fallegum haustlitum.
Villibráðarveisla
Gildir fimmtudaga til sunnudaga, 30 september til 31 október, kr 30.600 á dag fyrir 2, aukanóttin á 10.000 kr fyrir 2.
Á matseðlinum á föstudögum og laugardögum í október verður að sjálfsögðu villibráð, villtur lax og Mývatnsbleikja í forrétti, gæsir og hreindýr í aðalrétti og eftirréttir úr bláberjum og eplum, matreitt af alkunnri snilld matreiðslumeistara okkar og sérvalin vín með villibráð boðin með. Tilvalið að taka helgina í sveitinni stunda gönguferðir og böð og njóta villibráðar bæði kvöldin.








